Hættum að eiturúða garða!

Þegar býflugan deyr, þá deyja blómin.

Tími garðaúðunar dauðans er að hefjast. Eiturpésar ganga um með eiturkúta og gasgrímur. Eiturgufur þrengja sér inn um glugga og gættir. Krakkar og kettir kasta upp, fullorðnum verður bumbult.

Skordýraeitrið heitir "permetrín". Það er eitrað fyrir menn og spendýr en banvænt fyrir nær öll skordýr; fiðrildalifrur, blaðlýs, maura, köngulær, allar flugur jafnt býflugur sem hunangsflugur.
Permetrín drepur ALLT líf í garðinum. Það drepur fiska og það getur valdið ofnæmi hjá fólki. Það strádrepur ketti. Það brotnar þó fljótt niður en er mjög öflugt á meðan það er virkt.

Eitrið drepur öll skordýr, jafnt gagnleg sem "ógagnleg".

Garðaúðun raskar lífríki náttúrunnar.

Garðaúðun er hryðjuverk gegn lífríkinu.

Mikil vandamál hafa skapast víða t.d. á Bretlandseyjum. Þar er hunangsflugan horfin. Býflugur eru að hverfa í Bandaríkjunum. Þetta veldur því að blóm og jurtir að ýmsum toga frjóvgast ekki lengur. Lífríkinu hefur hnignað stórlega.

Til eru aðrar einfaldar leiðir til að halda skaðlegum skordýrum í skefjum en garðaúðun með banvænu eitri. T.d, með því að velja réttar tegundir gróðurs í garða. Tryggja nægilegt vatn og næringu. Úða bara með vatni á vorin þegar fiðrildalifrur kvikna.

Verndum lífríki náttúrunnar. Sláum skjaldborg um hunangsfluguna.

humla
Heilbrigð humla að störfum

 

Áhugaverðir hlekkir:


Bumbebees in Crisis
The Honey Bee Crisis 
Um garðaúðun (Árni Davíðsson)
Practical Approaches to Pest Control: The Use of Natural Compounds


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það á að banna skordýraeitur. Hvar er umhverfisráðherrann? Hvers vegna gerir hann ekkert í málinu?

Þorsteinn Siglaugsson, 25.4.2020 kl. 19:56

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þú ert þá með græna fingur vinur,eða svo er sagt um þá sem eru vel að sér í garðyrkjufræðum.Þegar ég bjó í einbýli notaði ég garðinn til að rækta kartöflur,og skika til að leifa ungviðinu að sparka í bolta.Engin blómarækt en auðvitað dáist ég að þeim hjá öðrum.

Helga Kristjánsdóttir, 26.4.2020 kl. 01:06

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það væri gaman að vita hvort þú átt einhver ráð við birkikembunni Júlíus. Hún fór mjög illa með tré hjá mér í fyrra, ég vil alls ekki eitra, en velti fyrir mér hvort einhver ráð eru til að fást við hana.

Þorsteinn Siglaugsson, 26.4.2020 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband