Aukinn vopnaburður unglinga - Innflutt vandamál

Aukinn vopnaburður unglinga lýsir í raun þeim grundvallarbreytingum, sem hafa orðið á íslensku samfélagi í tíð núverandi ríkisstjórnar. Meginábyrgðin liggur hjá ráðherrum Sjálfstæðisflokksins sem lengst hafa farið með þann málaflokk sem snýr að löggæslu- og dómsmálum og málefnum útlendinga. Hvatinn hefur komið frá samstarfsflokkunum.

Hingað til lands hafa streymt óáreittir ýmiss konar glæpahópar, hryðjuverkamenn og aðrir misyndismenn. Erlendar glæpaklíkur hafa hreiðrað um sig hér á landi með góðum árangri varðandi eiturlyfjadreifingu og sölu, innbrotum, þjófnaði, eignarskemmdum, ofbeldi, oftar en ekki kynbundnu, og ónæði fyrir hinn almenna borgara. Ungt fólk getur ekki lengur treyst því að fá að ganga óáreitt um bæjarfélög sín á kvöldin og á næturlagi og konur verða fyrir stöðugu áreiti og ofbeldi af hendi útlendinga, jafnvel leigubílstjóra!

Hvers vegna bera íslenskir unglingar nú vopn? Skýringin er sáraeinföld. Fjölgun erlendra glæpahópa og stóraukið ofbeldi í tengslum við þá veldur því að unglingunum þykir sem þeir þurfi að vopnavæðast til að geta varið sig. Innfluttir hryðjuverkamenn eru jafnvel farnir að ráðast á unglingana í skólunum! Enginn er óhultur. Þetta er innfluttur vítahringur í boði fjölmenningarsinna og glóbalista.

Að venju er byrjað á öfugum enda: „Það þarf að breyta unglingunum okkar, það þarf að breyta þeirra viðhorfi“ er sú mantra sem þulin er í sífellu. Lausnin felst ekki í því að breyta íslenskum unglingum. Það er ekkert að þeim. Lausnin felst í því að uppræta erlenda / og innlenda glæpahópa og vísa skilyrðislaust öllum innfluttum glæpamönnum tafarlaust úr landi sem unnt er skv. íslenskum lögum. Við erum að missa tökin. Íslenskir unglingar þurfa fyrst og fremst aukið öryggi í samfélaginu. Það dugar ekki að taka af þeim hnífana og hnúajárnin. Það dregur ekki úr ótta og óöryggi. Nú þarf að hreinsa rækilega til!

vopnaburður

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Minnir að í æsku minni í Keflavík hafi ég séð hnúajárn hjá einhverjum og flott þótti að geta sýnt félögum fjaðurhníf frá útlöndum
Jafnvel heyrði maður að einstaka aðilar hafi átt skammbyssu enda mikill samgangur við hermennina á Miðnesheiði

Sennileg er vandmálið sama og áður að börnunum skortir fyrirmyndir en vissulega er það orðið staðfest vandmál í Danmörku og Svíþjóð að börn  eru notuð til að fremja morð því "kerfið" hefur enga úrlausn nema segja skamm og senda þau svo heim. Líkt og virðist muni vera gert með þennan geranda á Menningarnótt

Grímur Kjartansson, 1.9.2024 kl. 10:35

2 Smámynd: Júlíus Valsson

Menningarnótt er rangnefni. Allir sem voru þá staddir í miðbæ Reykjavíkur var fulljóst að þar fór fram ómenning. "Ómenningarnótt meirihlutans" er réttnefni.

Júlíus Valsson, 1.9.2024 kl. 11:56

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hnífar eru nauðsynleg verkfæri hverjum manni yfir 10 ára aldri.  Til ýmissa verka.  Í raun ætti hnífaburður að vera skylda frekar en hitt.

Ein og þú bendir á: það er ekkert að ungdómnum.  Það er hinsvegar eitthvað mikið að þeim sem eldri eru, þeim sem eiga að heita fullorðnir.

Ásgrímur Hartmannsson, 1.9.2024 kl. 18:46

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og þrettán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband