Allir þeir sem setið hafa inni á Litla-Hrauni þekkja vel þann raunveruleika, sem þar blasir við nýjum vistmönnum. Eins og í öðrum fangelsum fá menn fljótlega verklega kennslu í þeim lögmálum sem þar gilda og þeim aðferðum sem menn kunna og beita. Yngri fangar læra af hinum eldri og forhertu. Gildir þar einu hvort menn hafa áhuga á að kynna sér bankarán, fjár- og umboðssvik eða bara venjuleg rán, dópsmygl og þess háttar föndur. Menn læra mjög fljótt að þú svíkur einfaldlega ekki þá sem komu þér þarna inn og bíða þolinmóðir eftir þér fyrir utan girðinguna. Allir vita hvað þá gerist. Þú ert því trúr þínum lífsgildum, glæpakóða og þínum glæpflokki. Reynt er þó af megni af yfirvöldum að halda byrjendum í afbrotum aðskildum frá hinum eldri svo vistin innan veggja fangelsisins verði þeim til betrunar.
![]() |
Fallegt bæjarstæði að Litla-Hrauni |
Nýir alþingismenn fá hins vegar að valsa um innan veggja Alþingis og þeim er ekki markvisst haldið frá hinum eldri, reynslumeiri og forhertari. Þeir læra því fljótt hvernig nýta má dvölina þar í eigin þágu, vina sinna og fjölskyldu. Haldin eru námskeið og farið í fræðsluferðir til vinveittra ríkja þar sem menn læra að ræna banka og sjóði og selja landið og auðlindir þess með lagasetningum og reglugerðum og drita niður vindmyllum og smávirkjunum, spæna upp landið og leggja sæstreng og gefa vildarvinum sínum milljarða allt í því heilaga nafni loftslagsmál. Vinsælt er að hagnast á innherjaupplýsingum t.d. frá orkufyrirtækjum og með því að greiða götu þeirra innlendra og erlendra aðila sem vilja selja landið og/eða menga það með innfluttri iðnaðarmengun, vítissóda eða viðarkurli sem er dælt í jörðina ("í þéttbýli" nota bene) eða varpað hafið. Oft dugar að múta innlendum eftirlitsstofnunum svo sem Hafró.
![]() |
Alþingi Íslendinga (mynd dv.is) |
Menn læra þar að auki af eldri þingmönnum á Alþingi hvernig á brjóta lög landsins jafnvel stjórnarskrána og svíkja stefnu síns eigin flokks, samflokksmenn og sannfæringu nánast án þess að nokkur taki eftir því. Þeir sem komu þér þarna inn munu ekki bíða eftir þér á Austurvelli þegar þú sleppur út. Þú getur því andað rólega.
Margt hefur áunnist með þessu hugarfari og er landið og auðlindir þess nú að miklu leyti nú komnar í eigu alvöru erlendra glæpaflokka þar sem gilda sömu lögmál og á Litla-Hrauni: Þú kjaftar ekki frá og stelur ekki frá okkur.
...eða eins og ungi þingmaðurinn, nýkjörinn til setu á Alþingi, sagði nýlega við fréttamann RÚV af því tilefni að hann vann drengskapareið að stjórnarskránni:
"Ég veit ekki hvað ég er að gera hér? Er eitthvað eftir á þessu landi til að ræna."
Tökum Litla-Hraun til fyrirmyndar og höldum ungum þingmönnum aðskildum frá hinum eldri!
Athugasemdir
Sæll Júlíus !
Mjög raunsönn lýsing þín; á þeim rauveruleika, sem landsmönnum ætti að vera löngu ljós, endurreisn alþingis 1845 er með einhverjum mestu óþarfaverkum seinni tíma Íslandssögunnar:: tek sem dæmiundanflæming Eyjólfs Ármannnssonar í samgöngumálum, til lands og sjávar og í lofti - kom inn á vegamálin við Sigurð Hannesson, eins leiðara Samtaka iðnaðarins á Miðvikudaginn var (12. II.) hvar hann sagði mjer lauslega frá fundi sínum og nokkurra annrra með Eyjólfi:: þá fyrr, um daginn - vega blæðingar eru nú í hámarki á Vesturlandi og Vestfjörðum / sívaxandi holuvandamál hjer austanfjalls, og nánast varhugaverð leiðin austur til Víkur í Mýrdal t.d. (skárra: frá Heimalandi undir Eyjajöllum og austur undir Skóga) hvers jeg varð vísari fyrr í vikunni, í einni söluferða minaa austur í
Skaftafellssýslu, á dögunum.
Þá; eru viðsjárverðar, hinar ofurstæku tilhneigingar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdæóttur, til enn frekara fylgilags við Sovjet- Evrópu (Evrópusambandsið) og NATÓ´S ekki síður.
Ýmsir; höfðu nokkra tiltrú á Miðflokki Sigmundar Davíðs, fyrir Nóvember kosningarnar í vetur, en undirlægjuháttur þess flokks gagnvart óbreyttu kvótakerfinu í Sjávarútveginum t.d. gerði það
að verkum, að þeir náðu ekki nema þessum 8 þingmönnum, sem allt eins hefðu getað orðið 16 - 18 a.m.k., hefðu þeir sýnt meiri dug og snerpu, miðað við þau sóknarfæri margvísleg, sem þau höfðu á hendi.
Margt annað; gæti jeg upp talið hjer, en vil ítreka þakkir mínar, fyrir þá beittu snerru sem þú sýnir, með þinni góðu grein:: hjer að ofan.
Með beztu kveðjum; af Suðurlandi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.2.2025 kl. 14:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.