Hvað bíður Bessastaða?

Margir furða sig á þeim gífurlega áhuga sem ríkisstjórnin sýnir nú á því að þröngva frumvarpi utanríkisráðherra um Bókun 35 í gegn um Alþingi með ógnarhraða.
Skítt með það, þótt frumvarpið standist ekki stjórnarskrána.
Skítt með það, þó sterk rök liggi fyrir um að það feli í sér landráð samkvæmt hegningarlögum.
Skítt með allt og alla – einkum þá rugludalla í þjóðfélaginu sem þykjast vita eitthvað um málið og vilja stöðva það!

hvad_bidur_Bessastaða_RVK
Þemis gengur aftur

(„Verst af öllu er að þessir atvinnukverúlantar – sjálfskipaðir fullveldissinnar, rasistar, Trumpistar og sviðsljósafíklar – skyldu hafa tekið eftir því þegar ÞKRG ætlaði fyrst að lauma frumvarpinu í gegn um þingið.“)

Skítt með allt!
Allt – nema hagsmunina.

Það kemur ekki til greina að endurtaka martröðina með þriðja orkupakka ESB. Nú verðum við að koma fjórða orkupakkanum í gegn með hraði, og til þess þurfum við einfaldlega Bókun 35.“

Hagsmunir skipta máli – þó ekki hagsmunir þjóðarinnar.
Við erum ekki þjóðin.

 „Raforkumarkaðurinn og orkuauðlindin eru nú á sama óreiðustigi og fjármálamarkaðurinn var fyrir hrun bankanna og þar ríkir sama stjórnleysið“ – sagði fyrrverandi orkumálaráðherra nýverið á Alþingi.

Hvers vegna skyldi það vera svona?
Svarið er einfalt: Hagsmunir.
Hvers vegna ekki að setja heildarlöggjöf um vindmyllur?
Svarið er einfalt: Hagsmunir.
Hvers vegna ekki að setja lög um forgang raforku til heimila og smærri fyrirtækja?
Svarið er einfalt: Hagsmunir.
Hvers vegna er ekki arðsemisþak á framleiðslu raforku til heimilanna: 
Vill einhver giska á svarið? Nefndi einhver "Hagsmuni"?      

Hvernig getum við bútað upp Landsvirkjun og selt bitana einkaaðilum?
Hvernig getum við reist vindmyllugarða á hverjum rokrassi og smávirkjanir í hverri sprænu?

Skiptir Bókun 35 þar einhverju máli?
Já, hún skiptir öllu máli.

Hvað bíður nú Bessastaða?  


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og níu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband