Um bábiljur í lćknisfrćđi

Tímarit breskra lćkna, British Medical Journal -BMJ, hefur ţađ fyrir árlegan siđ ađ tileinka síđasta tölublađ ársins sniđugheitum í lćknisfrćđi.  Í ár er blađiđ ađ venju svo sneisafullt af lćknaskopi og bágbyljum (veikindagríni)

(Innskot: Einu alvöru íslensku lćknabrandararnir er ađ finna í bók Ólafs Halldórssonar á Akureyri, sem heitir "Lćknabrandarar" og sem gefin var út af Skjaldborg áriđ 1984 međ teikningum eftir Kristinn G. Jóhannsson. Ţeir lćknabrandarar, sem ekki fengu ađ birtast í ţessari klassísku bók eru bara hreint ekkert fyndnir).

Í ţessu fyrrnefnda hefti BMJ er ađ finna áhugaverđa grein um ýmsar ţekktar bábiljur í lćknisfrćđi:
Glassofwater
1)  Menn eigi ađ drekka a.m.k. 8 glös af vatni á dag.
Sumir hafa haldi ţví fram, ađ menn eigi ađ drekka um 2-2,5 lítra af vatni á dag og er ţetta almennt viđhorf. Sannleikurinn er sá ađ vatnsţamb getur veriđ varasamt, ekki síst fyrir ţá sem eru međ hjartabilun og bjúgsöfnun. Almennt má miđa viđ 1ml af vatni á hverja kaloríu, sem neytt er af fćđi. Meginhluti ţess vatns, sem menn ţurfa yfir daginn er ađ finna í almennum neysluvörum og tilbúinni fćđu og ţeim drykkjum, sem menn neyta yfir daginn, jafnvel kaffi (hjúkk!). Ţess ber ţó ađ geta, ađ hjá  gömlu fólki minnkar oft ţorstatilfinningin međ aldrinum og menn eiga ţađ til ađ ţorna upp á gamalsaldri. Grein í CNN

brain2 Viđ notum einungis um 10% af heilanum.
 Ţetta kann ađ vera rétt varđandi vissa stjórnmálamenn, lćkna og fjölmiđlafólk en rannsóknir benda til ţess ađ hjá venjulegu fólki er ALLUR heilinn virkur. Ţetta kemur vist mörgum á óvart.







hair-nails3)  Hár og neglur vaxa fram yfir dauđa og gröf
Johnny Carson sagđi eitt sinn: "Hár og neglur halda áfram ađ vaxa í ţrjá daga eftir dauđann en rafhlađan í símanum deyr út". Hann hafđi rétt fyrir hvađ varđar rafhlöđuna. Hins vegar veldur ţurrkur í húđinni umhverfis neglur og hár eftir dauđann oft ţeirri sjónhverfingu ađ hár og neglur virđast lengjast. Slíkur raunverulegur vöxtur ţarfnast hins vegar flókins samspils hormóna líkamans sem ekki er lengur til stađar í dauđum líkama.

 




books4)  Lestur í rökkri skemmir sjónina
Ţađ getur veriđ erfitt ađ sjá skýrt ţ.e. "fókusera" í lélegri birtu  og menn blikka sjaldnar augunum sem aftur getur leitt til ţurrkstilfinningar og ónota í augunum. Ţađ er hins vegar ákaflega ólíklegt ađ léleg birtuskilyrđi geti skađađ sjónina. 






shaving_cream5)  Rakstur eykur hárvöxt og gerir hárin grófari og dekkri.
Ţessi bágbylja hefur selt mörg tonn af ýmiss konar háreyđingarkremum. Ţađ var ljóst áriđ 1928 ađ ţetta er hrein vitleysa. Konur geta ţví haldiđ áfram ađ raka á sér fótleggina (ef ţćr svo óska) međ góđri samvisku.  Rakstur fjarlćgir einungis ţann hluta hársins sem er ţegar dauđur og hefur ţannig á engan hátt áhrif á hárrótina sjálfa eđa hárvöxtinn.

 

 

6)  Kalkúnaát veldur syfju. 
Menn halda ađ kalkúnakjöt innihaldi óvenju mikiđ af amínósýrunni tryptophani, sem aftur getur valdiđ mikilli syfju.  Ţetta er ekki rétt, ţví ekki er óvenju mikiđ af ţessari amínósýru í kalkúnakjöti.   Kalkúnaát veldur ţví ekki meiri syfju en annar matur. Hins vegar getur ţungur matur almennt dregiđ úr blóđflćđi til heilans og ţannig valdiđ syfju, sérstaklega ef neytt er víns međ matnum.

ham_turkey

 

 

 

 

 

 

 

 

 

GLEĐILEGT ÁR 2008!


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Valsson

Socialstyrelsen í Sverige hélt ţví fram í fullri alvöru fyrir nokkrum árum, ađ allir ćttu ađ borđa a.m.k. 6 brauđsneiđar af grófu brauđi á dag. Helst fleiri.
Átta glös af vatni + 6 brauđsneiđar, hmmm.....

...hvađ segja endurnar á tjörninni í dag?

Júlíus Valsson, 6.1.2008 kl. 14:53

2 identicon

Ţetta er bábilja, ekki bágbylja...

Málfrćđifasistinn (IP-tala skráđ) 6.1.2008 kl. 21:41

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Erlingur...ţú ert ágćtur alveg.  Mćli međ ađ menn kíki á bloggsíđu ţessa mikla trúmanns, til ađ skilja fullyrđingu hans.

Á međan geta áhugasamir skođađ ţetta myndbrot um hvađ Homeopathy er í raun og veru.  Kannski er Elingur ađ vísa í Placebo effectinn, sem er skemmtilega virkur međal ofurtrúađra, sem og annarra örvćntra sála.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.1.2008 kl. 02:15

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ég treysti lćknisfrćđinni 101%.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 7.1.2008 kl. 10:00

5 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Ég nota nú bara 1 % af mínum heila.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 7.1.2008 kl. 17:57

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Erlingur:  Ţú sagđir án frekari rökstuđnings ađ hómópatían vćri ađ ná MIKLU betri árangri en lćknar eru ađ ná.  Ţetta er náttúrlega hlćgilegt eins og margt, sem ţú trúir á (Biblíukóđann og svo ertu ađ reikna út heisendi eftir innviđum Keopspíramídans t.d.)

Ég ţori nánast ađ hengja mig upp á ađ vinur ţinn lćknirinn skrifar ekki upp á ţessa fullyrđingu ţína.  Nálastungur eru jú viđurkenndar af ýmsum og ţykja ná árangri t.d. viđ sársauka ofl. Ţađ segir samt ekkert um Hómópatíu eđa annađ rakalaust kukl.  Ţađ er eins og ađ segja ađ fyrst ađ magnyl er gott viđ hausverk, sé bismarkbrjóstsykur ţađ líka.  Ţađ er alveg međ ólíkindum hvađ fólk er lagiđ viđ ţađ ađ leggja saman 2+2 og fá út simsalabimm.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.1.2008 kl. 04:01

7 identicon

Ţetta er međ ţví besta sem birst hefur á veraldarvefnum - alla vega ţađ besta sem birst hefur á bloggi. Mér finnst ađ ţú eigir ađ hringja í eitthvert blađ og selja ţeim ţessa grein. Svona myndu allir lesa. Kalkúnaátiđ og ţađ ađ ekki megi raka hár á fótleggjum er bara brot af ţví bulli sem gengur og allir trúa. Áfram Júlíus, áfram! Segđu okkur meira! Ţú ert frábćr

Anna (IP-tala skráđ) 10.1.2008 kl. 14:50

8 Smámynd: Júlíus Valsson

Takk Anna!
Sínum augum lítur hver silfriđ

Júlíus Valsson, 10.1.2008 kl. 15:51

9 Smámynd: Anna Theodóra Rögnvaldsdóttir

Venjuleg hár koma saman í spíss í endann, svona eins og gras. Rakvélar skera náttúrlega ţvert á hárin ţannig ađ ţau virka miklu grófari og meira áberandi ţegar ţau vaxa aftur.

Anna Theodóra Rögnvaldsdóttir, 22.1.2008 kl. 20:48

10 Smámynd: Júlíus Valsson

Já Anna Th og sólin og fleira gerir óskorin hár ljósari međ tímanum.

Júlíus Valsson, 22.1.2008 kl. 20:56

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband