Gunnar Birgisson var frábær skákmaður. Hann kunni að fórna peði fyrir betri stöðu á taflborðinu og hann vissi að sókn er stundum besta vörnin. Ögmundur Jónasson lýsir honum ágætlega í sunnudagsblaði Mbl í dag. Þar kemur fram, að Gunnar kunni að vera hægri maður. Hann lét þó ekki hægrið trufla sig í að finna hagkvæmustu lausnina.
Grein Ögmundar er góð hugvekja og þörf ábending til þeirra vinstri manna, einkum þeirra sem kenna sig við kommúnisma og sem í blindni halda að þeir geti stjórnað heilbrigðiskerfinu á Íslandi í anda gamla Sovét. Alþjóð veit, og er minnt á það daglega að það gengur ekki upp. Það er beinlínis hættulegt. Þetta vita menn, allir nema þeir sem nú stjórna Heilbrigðisráðuneytinu. Þeir hinir sömu þurfa að koma við í skóla Ögmundar sem fyrst til læra að verða betri vinstri menn.
![]() |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2021
Vanti þig rök - Hjólaðu þá í manninn
Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur nú sagt grasrót flokksins stríð á hendur. Ástæðan er sú að innan flokksins magnast nú upp háværar óánægjuraddir með stefnu flokksins í fullveldismálum þjóðarinnar. Skemmst er að minnast þess að allir þingmenn flokksins (utan einn - ÁF) studdu innleiðingu 3. orkupakka ESB í íslensk lög í blóra við ákvæði stjórnarskrárinnar um framsal yfirráða yfir auðlindum þjóðarinnar til yfirþjóðlegs valds og þvert á grunngildi flokksins og ályktana Landsfundar 2018.
Nýlega kom talsmaður forystunnar fram í Silfrinu þar sem leitaðist við að hræða þingmenn flokksins til fylgis við gervifrjálslyndi Viðreisnar "ella hefðu þeir verra af". Nægt framboð væri ungu "frjálslyndu" fólki sem væri reiðubúið til setu á þeirra stólum. Liður í þessum skollaleik voru ómaklegar árásir talsmannsins á Styrmi Gunnarsson f.v. ritstjóra sem nú er formaður Félags Sjálfstæðismanna um fullveldismál og hann sagður hafa staðið fyrir "furðulegum" fundi í Valhöll um 3. orkupakkann. Styrmir hélt magnþrungna barátturæðu á þessum fundi sem var hvorki "furðulegur" né á vegum Styrmis. Fundurinn var upphaflega skipulagður af þremur hverfafélögum flokksins í Reykjavík og var því að frumkvæði grasrótarinnar í flokknum. Það er erfitt fyrir forystu flokksins að afneita með öllu stefnuskrá eigin flokks og samþykktum Landsfundar, sem fer með æðsta valdið í flokknum. Það má reyna að réttlæta með því að hjóla í manninn, þ.e. Styrmi Gunnarsson í þessu tilviki, en slík vinnubrögð gera ekkert annað en að kasta rýrð á flokkinn og forystu hans um leið og það þéttir raðir fullveldissinna í grasrót hans. Með því að reyna að kasta rýrð á Styrmi, kasta menn rýrð á flokkinn og grunngildi hans um leið.
Hér að neðan má lesa ræðu Styrmis á stofnfundi félagsins á fullveldisdaginn þ. 1. desember 2019 þar sem hann var kosinn formaður.
Félag Sjálfstæðismanna um fullveldismál
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2020
Hættum að eiturúða garða!
Þegar býflugan deyr, þá deyja blómin.
Tími garðaúðunar dauðans er að hefjast. Eiturpésar ganga um með eiturkúta og gasgrímur. Eiturgufur þrengja sér inn um glugga og gættir. Krakkar og kettir kasta upp, fullorðnum verður bumbult.
Skordýraeitrið heitir "permetrín". Það er eitrað fyrir menn og spendýr en banvænt fyrir nær öll skordýr; fiðrildalifrur, blaðlýs, maura, köngulær, allar flugur jafnt býflugur sem hunangsflugur.
Permetrín drepur ALLT líf í garðinum. Það drepur fiska og það getur valdið ofnæmi hjá fólki. Það strádrepur ketti. Það brotnar þó fljótt niður en er mjög öflugt á meðan það er virkt.
Eitrið drepur öll skordýr, jafnt gagnleg sem "ógagnleg".
Garðaúðun raskar lífríki náttúrunnar.
Garðaúðun er hryðjuverk gegn lífríkinu.
Mikil vandamál hafa skapast víða t.d. á Bretlandseyjum. Þar er hunangsflugan horfin. Býflugur eru að hverfa í Bandaríkjunum. Þetta veldur því að blóm og jurtir að ýmsum toga frjóvgast ekki lengur. Lífríkinu hefur hnignað stórlega.
Til eru aðrar einfaldar leiðir til að halda skaðlegum skordýrum í skefjum en garðaúðun með banvænu eitri. T.d, með því að velja réttar tegundir gróðurs í garða. Tryggja nægilegt vatn og næringu. Úða bara með vatni á vorin þegar fiðrildalifrur kvikna.
Verndum lífríki náttúrunnar. Sláum skjaldborg um hunangsfluguna.
![]() |
Heilbrigð humla að störfum |
Áhugaverðir hlekkir:
Bumbebees in Crisis
The Honey Bee Crisis
Um garðaúðun (Árni Davíðsson)
Practical Approaches to Pest Control: The Use of Natural Compounds
Dægurmál | Breytt 27.4.2020 kl. 09:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.4.2020
Lyfið sem drepur kórónavírusinn
Sú þekking og kunnátta sem þarf til að hanna og framleiða til lyfið sem drepur kórónavírusinn er að öllum líkindum þegar fyrir hendi. Það er tiltölulega auðvelt tæknilega séð fyrir þá sem búa yfir öflugri gervigreind (AI) í samvinnu við vísindamenn að raða saman þeim þekkingarbrotum sem þegar eru til hjá stórum lyfjafyrirtækjum og finna rétta lyfið. Það eina sem þarf er að raða þeim saman.
Vandamálið er, að þessi sömu stóru, öflugu lyfjafyrirtæki sem ráða yfir þeim þekkingarbrotum sem þarf láta þau ekki svo auðveldlega af hendi jafnvel ekki í þágu alls mannkynsins. Það getur tekið allt að 18 mánuðum að fá fram virkt og hættulaust bóluefni svo málið er brýnt. Það hafa þó verið undantekningar á þessari þrjósku eins og þegar tíu af öflugustu lyfjafyrirtækjum heimsins þ.m.t. Johnson & Johnson, AstraZeneca og GlaxoSmithKline tilkynntu á síðasta ári að þau myndu vinna saman að gerð nýs sýklalyfs sem getur unnið á fjölónæmum bakteríum, með því að leggja saman gagnagrunna sína.
Eftir hverju eru menn nú að bíða?
Kannski Freud gamli hefði vitað svarið. Hann talaði stundum um að menn "héldu í sér".
![]() |
Lyfjaframleiðendur þurfa e.t.v. sálgreiningu? |
Dægurmál | Breytt 3.4.2020 kl. 08:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Svo langt hefur þetta gengið að skólar landsins eru nú alvarlega að íhuga að innleiða "hollari" fæðu sem t.d. inniheldur ekki kjötmeti en þar kemur einnig til önnur pólitísk þráhyggja, sem er hamfarahlýnun af mannavöldum. Skólabörnin geta nú leyst okkur undan náttúruhamförum og jafnvel heimsendi t.d. með því að skrópa í skólanum og tyggja gulrætur. Hvers vegna datt okkur þetta ekki í hug fyrr? Eða er ábyrgð barnanna okkar orðin þeim byrgði?
Átta hættumerki Orthorexia nervosa:
1) Þráhyggja vegna gæði matvæla.
2) Ósveigjanleiki í neyslumynstri.
3) Sterk tilfinningaleg viðbrögð við brot á "næringar-reglum".
4) Einhæft fæðisval t.d. eingöngu nærst á grænmeti og/eða ávöxtum.
5) Heilsukvíði; stöðugar áhyggjur af sjúkdómum og veikindum
6) Kvíðaviðbrögð við að vera nálægt vissum fæðutegundum.
7) Ástandið tengist ekki ákveðinni líkamsímynd.
8) Þyngdartap.
Mikilvægt er að skólar landsins ýti ekki undir þessa þróun með einhæfu fæðuvali, hamfarahugsunum, og stöðugri heilsu- og fæðu-þráhyggju.
![]() |
ps
svo legg ég til að börnin okkar fái áfram að halda upp á Litlu-Jólin í skólunum
ref.
Scarff JR. Orthorexia Nervosa: An Obsession With Healthy Eating. Fed Pract. 2017;34(6):3639.
Dunn, T. M. og Bratman, S. (2016). On orthorexia nervosa: A review of the literature and proposed diagnostic criteria. Eating Behaviors, 21, 11-17.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2019
Ísland er kjarnorkuþjóð.
Árið 2017 var langt frá því að vera "grænt ár" eða "sjálfbært ár" eða "endurnýtanlegt ár" í orkumálum Íslendinga ef marka má skýrslu Orkustofnunar. Það vekur hins vegar furðu hve geislavirkur úrgangur er lítill miðað við kjarnorkunotkununa en spurning vaknar:
Hvar er kolabingurinn geymdur og hvert fer öll askan?
![]() |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.12.2018
Tvöfalt heilbrigðiskerfi á Íslandi
Samningar sjálfstætt starfandi sérfræðilækna renna út þ. 31. desember 2018. Heilbrigðisráðherra hefur ekki svarað forsvarsmönnum lækna með það hvort að endurgreiðslureglugerð verði sett eða ekki.
Verði reglugerð sett verður líklega tekið mið af gömlu gjaldskránni og læknum í sjálf vald sett hvort að þeir styðjist við hana eður ei. Almannatryggingar landsmanna virðast því í algeru uppnámi og stefnir Ísland nú hraðbyri á tvöfalt heilbrigðiskerfi (ameríska kerfið) í boði ríkisstjórnarinnar. Hvað segir hinn almenni kjósandi við því?
![]() |
Ameríska heilbrigðiskerfið |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2018
Arsenal lækkar rafmagnsreikninginn
Gífurleg eftirsókn er í löndum ESB eftir vistvænni ("grænni") raforku. Í Bretlandi, þar sem verð á raforku hefur nú náð hæstu hæðum eru menn hvattir til að setja upp sólarrafhlöður á þök og svalir húsa sinna ("rent-your-roof model") sem orkufyrirtæki setja upp án kostnaðar fyrir eigandann þrátt fyrir að sólarorka reynist afar dýr og óhagstæður kostur þegar upp er staðið. Mörg knattspyrnufélög á Bretlandseyjum hafa þrátt fyrir það látið setja upp sólarrafhlöður til að spara rafmagnskostnað.
(Um 2 megavött(MW)þarf til að lýsa upp hvern 90 mín knattspyrnuleik,
sem svarar til orkunotkunar 2.700 heimila í 2 klst.)
![]() |
Arsenal rafhlöðurnar |
Knattspyrnufélagið Arsenal hefur hins vegar ákveðið að setja upp gífurlega öflugar lithium rafhlöður í kjallaranum á Emerates Stadium, sem tekur 60.000 manns. Um er að ræða stóra samstæðu rafgeyma (3MW/3.7MWh), sem félagið getur hlaðið utan álagstíma með ódýrara rafmagni og notað síðan þegar leikur stendur yfir á vellinum. Umframorkuna getur félagið selt aftur til orkufyrirtækisins til að lækka kostnaðinn enn frekar og lækka um leið álagið á raforkukerfið, sem er ærið fyrir og mun fara vaxandi með aukinni rafbílavæðingu í framtíðinni.
Fullyrt er að rafmagnið til Arsenal komi frá endurnýjanlegum orkulindum eingöngu.
Til samanburðar er gert ráð fyrir að 1.200 km sæstrengur frá Íslandi geti flutt um 1.000 MW. Þar er orkutapið á leiðinni ekki reiknað inn í dæmið. Um 50MW kerfi þarf til að hlaða 100 rafbíla í einu.
ref.
Power-technology.com
The Guardian
Burges-Salmon
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.10.2018
22. vikna fóstur getur lifað
Nú liggur fyrir frumvarp heilbrigðisráðherra sem leyfir fóstureyðingar fram að lokum 22. viku meðgöngu.
Hvar ætlar háttvirtur heilbrigðisráðherra að fá lækna, sem reiðubúnir eru að murka lífið úr heilbrigðum 22. vikna fyrirburum, sem vel geta lifað með réttri aðstoð sérhæfðs starfsfólks á nýburadeildum?
Myndin sýnir 22. vikna gamalt barn í móðurkviði |
![]() |